Nípukotsætt.
Ættfræðifélagið hefur fengið nokkur eintök af Nípukotsætt til sölu hjá félaginu. Sjá nánar hér: Nípukotsætt.
Heimsóknir
Opið hús á næstunni
Laugardaginn 12. maí 2012 klukkan 12-15.
Miðvikudaginn 16. maí 2012 klukkan 17-19.
Laugardaginn 19. maí 2012 klukkan 12-15.
Sjá nánar hér: Tilkynningar
Velkomin
Velkomin á heimasíðu Ættfræðifélagsins.
Hlutverk Ættfræðifélagsins er eins og segir í lögum félagsins, að stuðla að auknum áhuga á ættfræði, ættfræðirannsóknum og útgáfu frumheimilda og hjálpargagna fyrir þá sem stunda þjóðleg fræði (ættfræði) svo sem útgáfu manntala, búendatala og ættartöluhandrita, en einnig að halda félagsfundi um ættfræðilegt efni, útgáfa félagsbréfs og að leita eftir samstarfi við önnur fræðifélög hérlendis og erlendis.
Þetta felur einnig í sér aðstoð við þá aðila sem vilja gera eigin niðjatöl og ættartölur og er okkur bæði ljúft og skylt að leiðbeina þeim sem óska aðstoðar við ættfræðina.
Ættfræðifélagið hefur aðsetur að Ármúla 19, annarri hæð og er opið þar á miðvikudögum klukkan 17-19 og á laugardögum klukkan 12-15. Síminn er 5882450 og netfangið er
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
. Þar er hægt að komast í ágætt bókasafn um ættfræði og ávallt er kaffi á könnunni.
Allir geta orðið félagar í Ættfræðifélaginu. Einungis þarf að skrá sig á síðu félagsins og greiða árgjaldið sem nú er 5.000 krónur á ári. Úrsögn úr félaginu þarf að vera skrifleg
Athugið að síðasta opna húsið á þessu vori er miðvikudaginn 23. maí 2012, en félagið mun opna aftur í lok ágúst en í síðasta lagi í byrjun september.

